Magnús Carlsen heimsmeistari í kapp-, at- og hraðskák. Mynd: Lennart Ootes/FIDE

Magnús Carlsen (2865) varð í dag heimsmeistari í hraðskák eftir æsispennandi mót sem fram fór í Moskvu um jólin. Þar með er Magnús þrefaldur heimsmeistari í skák. Í kapp-, at- og hraðskák. Carlsen og Hikaru Nakamura (2885) urðu efstir og jafnir með 16½ í 21 skák. Þeir tefldu umspil um heimsmeistaratitlinn og þar hafði sá norski betur 1½-½. Vladimir Kramnik (2748), sem sótti rykuga taflmennina í hilluna, stóð sig frábærlega og varð í þriðja sæti.

Mikið gekk á í hraðskákinni. Mest gekk þegar Carlsen vann Íranann (fyrrverandi?) Alireza Firouzja (2649). Þá féll Firouzja á tíma með biskup og þrjú peð gegn biskupi Magnúsar.  Carlsen var dæmdur sigur þar sem hægt er að stilla upp máti. Fullkomlega réttur dómur samkvæmt FIDE-lögum þótt að sumum kunni að þykja hann ósanngjarn.

Lokastaða efstu manna

Lokastöðuna í heild sinni má finna á Chess-Results.

HM kvenna í hraðskák

Kataryna Lagno er heimsmeistari kvenna í hraðskák. Mynd: Lennart Ootes/FIDE

Hin rússneska Kataryna Lagno (2606) er hraðskákmeistari kvenna. Í öðru sæti varð Anna Muzychuk (2504).

Lokastaða efstu kenna

Lokastöðuna í heild sinni má finna á Chess-Results.

Nánar um mótin á Chess.com.

Viltu tefla sjálfur?

Skáklíf landans er komið í frí í ár! Minnt er á Skákþing Reykjavíkur sem hefst 5. janúar nk.

Norðmanmenn geta teflt fyrr því Nýársmót Skákfélags Akureyrar fer fram á nýársdag.

- Auglýsing -