Magnús V. Pétursson, fv. forstjóri, hinn mikli öðlingur og víðfrægi milliríkjadómari í handbolta og knattspyrnu, fagnaði 87 ára afmæli sínu á gamlársdag. Hann er einn virkasti eldri skákmaður landins, þó Páll G. Jónsson og Gunnar Kr. Gunnarsson, fylgi honum fast á hæla, en þeir verða báðir jafngamlir honum nú í vor. Að venju heldur Magnús upp á aldursáfangann með myndarlegu afmælismóti og veislufagnaði í Stangarhyl, sjálfum sér og skákfélögum hans til yndisauka, á morgun, þriðjudaginn 7. janúar. Þetta er VIII. afmælismót hans í röðinni.
Maggi Pé eins og hann er betur þekktur hefur síðan hann varð áttræður haldið upp á afmæli sitt með pomp og prakt með því að bjóða góðvinum sínum og skákfélögum til skákmóts, fyrst í höfuðstöðvum Jóa Útherja í Ármúla en nú síðustu 3 árin í Ásgarði, félagsheimili FEB, þar sem ÆSIR, skákklúbbur eldri borgara, hefur aðsetur og teflt er grimmt alla þriðjudaga frá kl. 13-17 yfir hausti til vors.
Magnús er Þróttari inn við beinið og var einn af stofnendum Skákdeildar Þróttar á sínum tíma. Á síðari árum hefur Magnús ekki aðeins verið drjúgur við að tefla sjálfum sér til ánægju og yndisauka í hópi eldri borgara i – heldur hefur hann og hans ágæta fjölskyldufyrirtæki, áður Hoffell nú Jói Útherji, verið iðið við að styðja skákhreyfinguna og einstaka skákklúbba myndarlega til mótahalds um áratugaskeið. Má þar m.a. nefna nú í síðari tíð skákklúbba eldri borgara, Æsi, Riddarann og Korpúlfa, en Magnús hefur gefið bikara og aðra verðlaunagripi til móta á þeirra vegum í stórum stíl.
Afmælismótið hefst kl. 13. Vegleg verðlaun og viðurkenningar. Telfdar verða 9 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma. Allir velkomnir óháð aldri og skákgetu – en Maggi er sterkur, eins og hann segir títt sjálfur.
ESE
















