Jóhann Hjartarson að tafli.

Jóhann Hjartarson (2524) hefur fullt hús eftir tvær umferðir á alþjóðlega mótinu á Gíbraltar. Í annarri umferð, sem fram fór í gær, vann hann Hollendinginn Gerben Veltkamp (2140). Jóhann er meðal 33 keppenda sem hafa fullt hús.

Þriðja umferð fer fram í dag. Þá teflir Jóhann við rússneska stórmeistarann Maksim Chigaev (2616). Hægt er að fylgjast með Jóhanni á Chess24. Umferðin hefst kl. 14.

Alls tefla 248 skákmenn í efsta flokki mótsins og þar af eru 85 stórmeistarar. Stigahæstir keppenda eru Mamedyarov og MVL en báðir hafa þeir 2770 skákstig. Jóhann er nr. 64 í stigaröð keppenda.

 

- Auglýsing -