Caruana vann Firouzja. Carlsen á röltinu. Mynd: Alina l'Ami/Tata Steel Chess.

Fabiano Caruana (2822) er efstur með 7 vinninga eftir 10. umferð Tata Steel-mótsins sem fram fór í gær. Caruana vann Íranann landlausa, Alireza Firouzja (2723), í gær. Magnús Carlsen (2872) er funheitur eftir rólega byrjun, þ.e. jafntefli í sjö fyrstu skákunum. Í gær vann hann sínu þriðju skák í röð þegar hann lagði Vladislav Kovalev (2660) að velli og er annar með 6½ vinning.

Staðan eftir tíu umferðir

Frídagur er í dag. Í elleftu umferð sem fram fer á morgun teflir Carlsen við Jan-Krzysztof Duda (2758) en Caruana við Kovalev.

Spánverjinn David Anton Guijarro (2694) er efstur í b-flokki.

Sjá nánar á Chess.com.

- Auglýsing -