Fjórða umferð Skákþings Akureyrar var tefld í gær. Í A-flokki töpuðu tveir efstu menn sínum skákum og þéttist hópurinn mjög við það, aðeins munar 1,5 vinningi á efsta og neðsta manni. Úrslit:
Andri-Stefán 0-1
Smári-Karl 1-0
Sigurður-Eymundur 1/2
Hjörleifur-Elsa 1/2
Staðan eftir fjórar umferpir af sjö:
1. Andri Freyr 3; 2-3. Karl og Smári 2,5; 4. Hjörleifur 3; 5-8. Eymundur, Elsa, Sigurður og Stefán 1,5.
Í fimmtu umferð eigast þessi við:
Eymundur-Andri
Karl-Sigurður
Elsa-Smári (verður tefld á þriðjudag)
Stefán-Hjörleifur
Arna Dögg með fullt hús í B-flokki
Í B-flokki hafði Arna Dögg betur í viðureign efstu manna þegar hún lagði Robert að velli í spennandi skák. Önnur úrslit:
Árni-Sigþór 1-0
Ólafur-Emil (1-0)
Gunnar-Jökull 0-1
Markús-Hulda 1-0
Tobias-Alexía 1-0
Hér hefur Arna tekið forystuna með 4 vinninga. Næstir með 3 vinninga eru þeir Árni Jóhann, Ólafur Jens og Robert.
Í fimmtu umferð á sunnudag tefla þessi:
Arna-Ólafur
Robert-Árni
Sigþór-Markús
Emil-Jökull Máni (hefst kl. 14.30)
Hulda-Tobias
Alexía-Gunnar (verður tefld á þriðjudag)
Nánar á Chess-results, A-flokkur og B-flokkur















