
Það gengur á ýmsu á íslensku keppendum í Kragerö. Sumir þeirra byrjuðu vel í fyrstu umferðunum en svo gekk allt á afturfótunum í gær þegar 5. og 6. umferð fóru fram. Hjá öðrum var byrjunin slæm á degi 1 og 2 en tveir sigrar í gær.
Áfram er teflt í dag 7. og 8. umferð fara fram. Taflmennska dagsins hófst kl. 9.
Staða íslensku keppendanna eftir sex umferðir er sem hér segir:
A-flokkurinn
- 27.-37. GM Helgi Áss Grétarsson (2403) 3½ v.
- 38.-55. IM Davíð Kjartansson (2356), Hilmir Freyr Heimisson (2250), FM Jón Kristinn Þorgeirsson og CM Bárður Örn Birkisson (2186) 3 v.
- 56.-69. Stefán Bergsson (2172) og FM Vignir Vatnar Stefánsson (2323) 2½ v.
- 70.-86. Guðni Stefán Pétursson (2026) og Gauti Páll Jónsson (2027) 2 v.
B-flokkurinn

Þórður Guðmundsson (1553) og Héðinn Briem (1672) hafa 3 vinninga. Erlingur Jensson (1611) hefur 2½ vinning.
Umferðirnar hefjast kl. 09:15 og 14.45
- Auglýsing -












