Vegna þess að mótum í raunheimum á vegnum Skáksambandsins og taflfélaganna mun fækka næstu tvo mánuðina þá höfum við ákveðið að fjölga Skólanetskákmótunum þannig að þau verða nú vikulega á sunnudögum til 10.mai.

Áttunda umferð mótaraðarinnar fer fram sunnudaginn 15. mars kl. 17:00. Tefldar verða sjö umferðir með 4 mínútna umhugsunartíma og 2 sek viðbót við hvern leik. Áætlað er að mótinu ljúki kl. 18:30.

Tengill á mótið: https://www.chess.com/live#t=1157970

Heimasíða mótsins: https://www.chess.com/club/skolanetskak

Staðan í mótaröðinni:

https://docs.google.com/spreadsheets/d/1e_gT5iMttLxLLdPWLHZeybdmbXsfSWJqotTvW7s4Kao/edit?usp=sharing

NÁNAR UM MÓTARÖÐINA

Í vetur verða mánaðar/vikuleg netskákmót á chess.com fyrir skákkrakka á grunnskólaaldri.

Keppt er um bestan árangur í hverjum bekk fyrir sig á landsvísu.

Góð verðlaun í boði m.a. ferðavinningur að verðmæti 50þús fyrir bestan árangur í mótaröðinni. Í þeim potti keppa allir saman. Fimm bestu mótin telja.

Svona skráir þú þig til þátttöku og teflir:

  1. Velur notendanafn (ef þú ert nýr notandi) og skráir þig inn á https://chess.com/register
  2. Skráir þig til keppni í mótaröðinni hérna -> Skráningarform
  3. Skráir þig í klúbbinn „Skólanetskák“ hjá Chess.com.
  4. Mætir á https://www.chess.com/live tímanlega fyrir mót og skráir þig í mótið. Mótið er aðgengilegt undir „Tournaments“ hægra megin við skákborðið.
  5. Þegar mótið byrjar er sjálfkrafa raðað saman andstæðingum í 1.umferð
  6. Eftir að þú klárar þína skák í hverri umferð bíður þú þar til þú færð sjálfkrafa næsta andstæðing.  

 

Skákstjórar:

Tómas Veigar Sigurðsson, Halldór Grétar Einarsson og Stefán Bergsson

- Auglýsing -