Þegar tvær umferðir eru eftir á Íslandsmótinu í netkappskák þá er staða efstu manna eftirfarandi.
- FM Vignir Vatnar Stefánsson Breiðablik,Bolungarvík&Reykjanes 2296 5 vinninga
- Páll Snædal Andrason Taflfélagi Vestmanneyja 1897 4,5 vinninga
- FM Guðmundur Stefán Gíslason Breiðablik,Bolungarvík&Reykjanes 2308 4 vinninga
- Hjálmar Sigvaldason Vinaskákfélaginu 1474 4 vinninga
Það er ljóst að unga kynslóðin er orðin vel þjálfuð í leppunum. Keppendur í eftirfarandi skák urðu Íslandsmeistarar í flokkum U8 og U10 í Íslandsmóti ungmenna í haust (ekki netskák!). Þeir hafa nú báðir hækkað sig um aldursflokk á nýju ári.
Hvítt: Arnar Freyr Orrason Breiðablik,Bolungarvík&Reykjanes 1011
Svart: Einar Dagur Brynjarsson Víkingaklúbbnum 1157

35. Dg1 Hb7 36.Hd3 Bf5 37.Dxe3 Dxe3 38.Hxe3 Bxb1 39.Ba6 H7b8 40.Bxc8 Hxc8 Skákinni lauk síðar með Íslandsmeistarajafntefli. Öll skákin hérna. Framtíðin er björt hjá okkar unga skákfólki og íslenskri skák í dag.
Sjötta umferðin byrjar kl 14 og eftirfarandi skákir verða tefldar. Úrslitaþjónusta í þessu móti er óvenjugóð og bæði úrslit og skákir birtast á heimasíðu mótsins skömmu eftir lok þeirra.
Það er keppt í allmörgum flokkum í Íslandsmótinu í netskák. Margir hafa staðið sig vel og má þar sérstaklega nefna Hjálmar Sigvaldason Vinaskákfélaginu sem hefur teflt mjög vel í mótinu. Einnig hefur nýliðinn Árni Jóhann Árnason Vinaskákfélaginu staðið sig vel.
Efstar í kvennaflokki
1.Lenka Ptacnikova 3,5 vinninga
2. Guðrún Fanney Briem 2,5 vinninga
Efstir í unglingaflokki (17-22 ára)
1.Vignir Vatnar Stefánsson 5 vinninga
2.Árni Jóhann Arnarsson 2 vinninga
Efstir 65+
1.Ögmundur Kristinsson 3,5 vinninga
2.Kormákur Þráinn Bragason 3 vinninga
Efstir 50+
1.Guðmundur Stefán Gíslason 4 vinninga
2.Gunnar Freyr Rúnarsson 3,5 vinninga
Efstir Áhugamenn (undir 2000 eló)
1.Páll Snædal Andrason 4,5 vinninga
2.Hjálmar Sigvaldason 4 vinninga
Efstir Nýliða (undir 1600 eló)
1.Hjálmar Sigvaldason 4 vinninga
2.Árni Jóhann Árnason 3 vinninga
Efstir U14
1.Benedikt Þórisson 3 vinninga
2.Rayan Sharifa 3 vinninga
Efstar U14 stúlkur
1.Arna Dögg Kristinsdóttir 2 vinninga
Efstir U12
1.Markús Orri Óskarsson 3 vinninga
2.Matthías Björgvin Kjartansson 3 vinninga
3.Einar Dagur Brynjarsson 3 vinninga
Efstar U12 stúlkur
1.Guðrún Fanney Briem 2,5 vinninga
2.Hulda Rún Kristinsdóttir 1 vinning
Efstir U10
1.Arnar Freyr Orrason 3 vinninga
2.Jósef Omarsson 2 vinninga
Efstir U8
1.Birkir Hallmundarson 2 vinninga
Heimasíða mótsins og skákir mótsins


















