Spennan fyrir lokaumferð Norðurlandsmóts skákfélaga er gríðarleg. SSON (Selfoss) og OSS (Osló) eru á toppnum með 21 stig af 24 mögulegum. Víkingaklúbburinn og sænski klúbburinn Wasa eru í 3.-4. sæti með 20 stig. Öll þessi fjögur lið geta unnið keppnina.
Röð efstu liða
Stöðuna í heild sinni má finna hér.
Lokaumferðin fer fram á morgun, annan dag páska. SSON mætir Wasa á morgun en Víkingar tefla við Osló.
Helstu viðureignir lokaumferðar
Skáksamband Íslands stendur fyrir mótshaldinu í samvinnu við hin norrænu skáksamböndin og Chess.com.
- Liðin á Chess-Results
- Hægt er að fylgjast með einstaka viðureignum hér.
- Heimasíða mótsins
- íslenskir skákmenn á Facebook
- Auglýsing -
















