Átakið “Sókn er besta vörnin” heldur áfram og hvetjum alla til að taka þátt.
Mánudagsmátsókn Vinaskákfélagsins
Vinaskákfélagið hefur skipulagt „Mánudagsmátsókn“ sem fer fram mánudaginn 20. apríl kl. 17:00. Tefldar verða 5 umferðir með tímamörkunum 7+0.
Keppendur þurfa að ganga í klúbb Vinaskákfélagsins á Chess.com.
Nethraðskákkeppni Klúbba
Skáksamband Íslands stendur fyrir Nethraðskákmóti Klúbba sem fer fram á vefsíðunni Lichess.org. Mótið verður haldið með svokölluðu „Team Battle“ fyrirkomulagi, sem er nýstárleg útfærsla á liðakeppnum.
- Laugardaginn 25. apríl kl. 13 – 14:30 fer annað mótið fram.
Tengill: Kemur fljótlega
Dagskráin hjá Team Iceland í þessari viku
Á þriðjudaginn kl. 19:30 fer fram Þriðjudagsmót að hætti TR-inga. Tefldar eru 4 umferðir með tímamörkunum 15+5.
Fimmtudaginn 23. apríl kl. 19:30 fer svo fram hraðskákmót á vegum Víkingaklúbbsins. Tefldar verða 3+0 skákir með Arena fyrirkomulagi í 120 mínútur.
Laugardaginn 25. apríl kl. 13:00 verður 2. umferð Nethraðskákkeppni Klúbba tefld á Lichess.org.
Mótin eru opin öllum Íslendingum og það kostar ekkert að taka þátt!
DAGSKRÁIN VIKUNA 20. – 26. APRÍL
ÞRIÐJUDAGINN 21. APRÍL KL. 19:30
Þriðjudagsmót (TR). 15+5 4 umferðir
- Tengill: https://www.chess.com/live#t=1198065
FIMMTUDAGINN 23. APRÍL KL. 19:30
Hraðskákmót Víkingaklúbbsins. 3+0 skákir í 120 mínútur (Arena mót)
Tengill: https://www.chess.com/live#r=187285
LAUGARDAGINN 25. APRÍL KL. 13:00
2. umferð Nethraðskákkeppni Klúbba á lichess.org
Tengill: Kemur síðar
HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Nýliðar þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst.
Tenglar á mótin eru hér að ofan, en þá má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com/live áður en mótin hefjast.
HVATNING TIL SKÁKFÉLAGA OG LEIÐBEININGAR FYRIR MÓTSHALDARA
Forráðamenn félaga og aðrir skákfrömuðir eru hvattir til þess að kynna sér hvernig mótshald á Chess.com gengur fyrir sig. Það er alls ekki flókið að halda netmót og vel mögulegt að búa til allskonar hópa og halda ýmiskonar mót. Sem dæmi geta félög teflt liðakeppni (sbr. LCWL), eða haldið mót fyrir ákveðna aldurshópa (með því að nota skráningarform og búa til sérstakan hóp), styrkleikahópa o.s.frv..
Chess.com tók saman mjög góðar leiðbeiningar um efnið: https://www.chess.com/article/view/how-to-run-chess-events-online
Það er meira en sjálfsagt mál að aðstoða þá sem vilja halda viðburði á netinu. Slíkum beiðnum er hægt að koma á framfæri á skaksamband@skaksamband.is.


















