Mynd af Chess24.

Fyrri hluti annarrar umferð Boðsmóts Magnúsar Carlsen fór fram í gær. Í hverri umferð eru tefldar fjórar atskákir (15+10). Gestgjafinn, Magnús Carlsen (2881) vann Íranann Alireza Firouzja (2703) með minnsta mun 2½-1½ þrátt fyrir að hafa leikið sig illa í mát í annarri einvígisskákinni.

Í hinu eínvíginu vann Hikaru Nakamura (2829 sigur á Anish Giri (2731) einnig með minnsta mun.

Á mótnu eru gefin 3 stig fyrir sigur í einvígum og 2 stig ef bráðabana (armageddon) þarf til.

Staðan eftir fyrri hluta 2. umferðar

 

Seinni hluti annarrar umferðar fer fram í dag. Ian Nepomniachtchi (2778) mætir Maxime Vachier-Lagrave (2860) og Ding Liren (2836) teflir við Fabiano Caruana (2773).

Taflmennskan hefst kl. 14 alla daga. Tímamörkin eru 15+10.

Nánar á Chess24.

- Auglýsing -