Síðari hluti fyrstu umferðar Boðsmóts Magnúsar Carlsen fór fram í gær á Chess24. Í hverri umferð eru tefldar fjórar atskákir (15+0). Maxime Vachier-Lagrave (2860) vann Anish Giri (2731) 3-1 og Fabiano Caruana (2773) lagði Ian Nepomniachtchi (2778) að velli 2½-1½.

Á mótnu eru gefin 3 stig fyrir sigur í einvígum og 2 stig ef heimsendaskák (armageddon) þarf til. MVL og Caruana eru efstir ásamt Ding Liren (2836).

Staðan eftir fyrstu umferð

Fyrri hluta annarrar umferðar fer fram í dag. Carlsen mætir Alireza Firouzja (2703) og hefur þar með tækifæri á að hefna ófaranna frá um daginn. Hikmaru Nakamura (2829) mætir Anish Giri.

Taflmennskan hefst kl. 14. Skákmennirnir hafa 15 mínútnur á hverja skák.

Nánar á Chess24.

- Auglýsing -