Íslandsmótið í netskák 2020 – BRIM-mótið fer fram á netþjóninum Chess.com, miðvikudagskvöldið 29. apríl, kl. 19:30. Íslandsmótið í netskák er elsta landsmót í heimi en fyrsta mótið var haldið 1996 af Taflfélaginu Helli. Afar góð verðlaun eru á mótinu eða 200.000 kr.
Athugið: Til að taka þátt í mótinu þarf nauðsynlega að vera meðlimur í klúbbi Skáksambands Íslands á Chess.com. Skráningarform neðar í fréttinni og á skak.is. Það er ekki nóg að vera meðlimur í Team Iceland til að taka þátt.
Í kvöld fer fram upphitunarmót og hefst kl. 19:30 sem er bara opið fyrir þá sem hafa skráð sig í nýjan hópinn. Teflt verður með sama fyrirkomulagi og í Íslandsmótinu í netskák, 9 umferðir með tímamörkunum 3+2. Þetta er tilvalið tækifæri til að ganga frá skráningu í Íslandsmótið og æfa sig í að tefla á þessum tempói.
Tengill á upphitunarmótið: https://www.chess.com/live#t=1206102
Þátttökuréttur
Allir Íslendingar búsettir hérlendis og erlendis geta tekið þátt sem og erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis.
Tímasetning
Íslandsmótið sjálft hefst miðvikudaginn 29. apríl kl. 19:30. Upphitunarmótið fer fram í dag, mánudag, kl. 19:30
Fyrirkomulag undankeppni
Teflt verður sama fyrirkomulagi og á Abu-Dhabi hraðskákmótinu á Chess.com sem haldið var fyrir skemmstu. Fyrst verða tefldar níu umferðir eftir svissneska kerfinu. Stuðst verður við oddastigareglur Chess.com.
Átta efstu keppendurnir komast í sérstaka úrslitakeppni sem að öllum líkindum verða tefldar í beinu framhaldi undankeppninnar.
Tímamörk eru 3+2
Fyrirkomulag útsláttarkeppni
Tefld verða 2ja skáka einvígi með tímamörkunum 3+2. Verði jafnt verður tefldur bráðabani (armageddon) þar sem hvítur hefur 5 mínútur en svartur 4 mínútur. Svörtum dugar jafnteflis til að komast áfram.
Skákreglur
Allar reglur skákþjónsins Chess.com gilda á mótinu. Enginn skákstjóri verður á vegum mótshaldara.
Verðlaun
- 100.000
- 50.000
- 25.000
- 25.000
Skráning
Skráning fer fram á Skak.is. Til að skráning sé gild þarf að gefa upp fullt nafn, FIDE-númer (þeir sem ekki hafa slíkt setji inn 0) og notendaheiti á Chess.com. Skrá sig þarf fyrir kl. 19:00 miðvikudaginn, 29. apríl.
Skáningarform
Aðrar reglur
Bannað er að þiggja alla utanaðkomandi aðstoð á meðan mótinu fer fram. Chess.com mun fara yfir allar skákir mótsins með tilliti til alls svindls. Verðlaun verða ekki greidd út fyrr en þeirri yfirferð er lokið.
Sé það mat Chess.com að svindl hafi átt sér stað getur viðkomandi átt von á banni á Chess.com. Slík brot geta jafnframt hafa mögulegar afleiðingar varðandi þátttöku á mótum á Íslandi.
Allar reglur Chess.com gilda á mótinu stendur.
Annað
Á meðan mótinu fer fram verða beinar útsendingar á www.chess.com/tv. Nánar kynnt síðar.

















