Giri sussar á gagnrýnendur sína. Mynd: Chess24.

Það urðu heldur betur óvænt úrslit í fyrri hluta fimmtu umferð Boðsmóts Magnúsar Carlsen sem fram fór í gær á Chess24. Anish Giri (2731) vann Magnús Carlsen (2881) og Alireza Firouzja (2703) lagði Maxime Vachier-Lagrave (2860) að velli. Báðir höfðu þeir tapað öllum sínum viðureignum hingað til.

Staðan breyttist lítt á mótinu. Carlsen er enn á toppnum og Giri og Firouzja enn neðstir og vonlítið fyrir þá að komast í úrslitakeppnina.

Í síðari hluta umferðinnar sem fram fer í dag teflir Hikaru Nakamura (2829) við landa sinn Fabiano Caruana (2773). Sigur gæti fært honum toppsætið. Hin viðureignin er ákaflega mikilvæg en þar tefla saman Ian Nepomniachtchi (2778) og Ding Liren (2836). Nepo þarf á sigri að halda.

Nánar á Chess24.

Taflmennskan hefst kl. 14 alla daga. Tímamörkin eru 15+10.

- Auglýsing -