2. umferð Nethraðskákkeppni Skákklúbba var tefld s.l. laugardag á Lichess.org. Alls eru 10 lið skráð í keppnina og mættu 72 keppendur til leiks að þessu sinni.

Lið Taflfélags Reykjavíkur heldur áfram góðu gengi, en liðið náði alls 159 stigum í 2. umferð og stendur afar vel að vígi í heildarkeppninni, er með 24 stig, eða fullt hús stiga.

Skákfélag Akureyrar sótti í sig veðrið í 2. umferð og náði í 124 stig, sem þýðir 10 GP stig og 2. sætið í heildarkeppninni.

Nýliðarnir í Gleymdu kynslóðinni enduðu í 3. sæti, náðu í 107 stig sem þýðir 8 GP stig og 8. sætið í heildarkeppninni.

Staðan í heildarkeppninni er þannig að lið TR er efst með 24 stig, lið SA í 2. sæti með 17 stig og Breiðablik, Bolungarvík og Reykjanes í 3. sæti með 14 stig. Ennþá er nóg af stigum í pottinum, enda þrjár umferðir eftir og lokaumferðin, sem fram fer 16. maí, gildir tvöfalt.

Mótinu verður framhaldið laugardaginn 2. maí kl. 13.

Dagskrá

Staðan


REGLUR KEPPNINNAR

Nethraðskákkeppni Skákklúbba fer fram á vefsíðunni Lichess.org.

Keppnin er ekki hin formlega “Hraðskákkeppni taflfélaga”. Þessi keppni er ný og var skipulögð til þess að bjóða upp á skemmtilegar nýjungar í mótaþurrð vorsins. Sigurvegarinn hlýtur sæmdarheitið “Nethraðskákmeistari Skákklúbba”.

Tefld eru fimm mót, á laugardögum kl. 13:00 – 14:30. Fyrsta mótið fer fram laugardaginn 18. apríl og síðasta mótið fer fram 16. maí.

Fyrirkomulag

Keppnin er liðakeppni sem er tefld með svokölluðu “Team Battle” kerfi á vefsíðunni Lichess.org. Hægt er að tefla með tölvu, síma eða spjaldtölvu. Staðan í mótinu á hverjum tíma sést best með því að nota tölvu.

Tefld er hraðskák með tímamörkunum 3+2. Parað er eftir svokölluðu “Arena kerfi” og fá keppendur 2 stig fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli. Fleiri stig fást fyrir að vinna margar skákir í röð. Keppendur eru ekki paraðir gegn eigin liðsmönnum, aðeins gegn öðrum félögum.

Stigagjöfin er þannig: Bónusstig fást fyrir að vinna margar skákir í röð. Jafnframt er hægt að smella á “berserk” takka áður en leik er leikið í skákinni, en þá fær keppandi aðeins 90 sekúndur á alla skákina og engan viðbótartíma. Berserk gefur aukastig fyrir skákina.

Reiknuð verða út GP stig eftir hverja umferð, en efsta liðið fær 12 stig, næstu 10, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1. Lokakeppnin gildir tvöfalt.

Liðið sem er með flest stig eftir lokaumferðina þann 16. maí n.k. vinnur. Verði lið efst og jöfn, gilda samanlögð stig liða úr öllum umferðunum 5.

Þátttökuréttur

Klúbbum er frjálst að stilla upp eins fjölmennu liði og þau geta, en stig 6 hæstu í hverju liði gilda sem heildarstig liðsins. Allir liðsmenn gegna jafn mikilvægu hlutverki, en kerfið leitast við að para keppendur með svipuð stig.

Keppendur þurfa að ganga í sitt lið á Lichess. Að því loknu geta keppendur skráð sig í mótið sjálft, en tengill á mótið verður á skak.is og einnig birtur á F-B síðunni “Íslenskir skákmenn” áður en umferðir hefjast.

Aðeins er heimilt að stilla fram tveimur erlendum keppendum í hverri umferð

Aðrar reglur

Það er með öllu óheimilt að fá aðstoð frá öðrum keppendum eða skákreiknum. Lichess skannar allar skákir. Vakni grunur um um óheimila aðstoð þá er til staðar sjálfvirkur hugbúnaður sem útilokar keppendur.

Keppendur skulu tefla undir réttum nöfnum. Heimilt er að nota gælunafn (notendanafn) en rétt og fullt nafn skal koma fram í prófíl keppenda á Lichess. Einfalt er að stilla það með því að smella á notendanafnið uppi í hægra horninu, þar á profile og þar inni er tannhjól sem er hægt að smella á. Liðsstjórum ber að gæta að því að keppendur tefli undir fullu nafni. Tefli meira en einn skákmaður án þess að gefa upp nafn verða dregin frá 10 stig frá viðkomandi liði

Gangi ykkur vel og munið að gæta að háttvísí!

- Auglýsing -