Lokaumferð undankeppni boðsmóts Magnúsar Carlsen fór fram í gær. Heimsmeistarinn tefldi ákaflega flippsturlað á móti Ding Liren. Brá fyrir skrýtnum byrjunum og tefldi meðal annars kóngsbragð. Hann tapaði einvíginu 1-3. Anish Giri (2731) vann Fabiano Caruana (2773). Giri vann því tvo stigahæstu skákmenn heims en tapaði fyrir hinum!

Úrslit lokaumferðinnar:

Nakamura varð efstur 15 stig, Ding Liren varð annar með sömu stigatölu en lokari oddastig, Carlsen varð þriðji með 13 stig og Caruana fjórði en með lakari oddastig.

Verðlaunfé mótsins skiptist sem hér segir:

Nakamura mætir Caruana í undanúrlitum og Carlsen mætir Ding Liren. Viðureign Bandaríkjamannanna fer fram í dag en Carlsen og Ding mætast á morgun. Má búast við að Carlsen hætti að tefla á flippsturlaðan hátt. Úrslitin fara fram á sunnudaginn.

Nánar á Chess24.

Taflmennskan hefst kl. 14 alla daga. Tímamörkin eru 15+10.

- Auglýsing -