Átta manna úrslitum ögurskákmót skákklúbbsins í Saint Louis sem fram fer á Lichess lauk í gær. Levon Aronian lagði Alexander Grischuk að velli og Fabiano Caruana vann Leinier Dominguez.
Frídagur er í dag en undanúrslit hefjast á morgun. Í undanúrslitum mætast Carlsen og Aronian annars vegar og Wesley So og Fabiano Caruana hins vegar.
Um fyrirkomulag mótsins
Átta skákmenn taka þátt og teflt er eftir útsláttarfyrirkomulagi. Telfdar eru tólf skákir í hverju einvígi með tímamörkunum 10+5.
Skákir nr. 5-6 og 11-12 og er hins vegar skokallaðar ögurskákir (clutch games). Skákir 5 og 6 gilda tvöfalt og skákir 11 og 12 gilda þrefalt. Það eru því 18 vinningar í boði í hverju einvígi.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar á Chess24 (hefjast kl. 18)
- Auglýsing -
















