Afar fjölmennur aðalfundur Skáksambands Íslands (SÍ) fór fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur (TR) í dag. Fundurinn var einn sá fjölmennasti í manna minnum. Gunnar Björnsson var endurkjörinn forseti, Ásdís Bragadóttir var kjörin heiðursfélagi SÍ, Ásdís var jafnramt fyrsta konan til að öðlast sá heiður! Mikil endurnýjun varð á stjórn SÍ og margt nýtt fólk kom inn í stjórnina. Tillaga um að taka ekki upp úrvalsdeild – heldur áfram halda áfram með 10 liða 1. deild náði ekki kjörgengi.
Ný stjórn SÍ
- Gunnar Björnsson, forseti
- Agnar Tómas Möller
- Elvar Örn Hjaltason
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Kristófer Gautason
- Stefán Bergsson
- Þorsteinn Stefánsson
Agnar, Elvar, Jóhanna kom ný inn. Kristófer var áður í varastjórn. Stefán og Þorsteinn voru í fyrri stjórn. Aðalstjórn var í raun kosinn eftir tillögu forseta að aðalstjórn. Kosning var mjög hörð og þeir þrír sem sóttu um sæti í aðalstjórn voru mjög nálægt því markmiði!
Ný varastjórn
- Gauti Páll Jónsson
- Veronika Steinunn Magnúsdóttir
- Þorsteinn Magnússon
- Auðbergur Magnússon
Gauti var áður í varastjórn en aðrir eru nýjir í stjórn. Gauti Páll hlaut mjög góða kosningur með 35 af 37 atkvæðum.
Alls koma inn sex nýir stjórnar- og varastjórnarmenn af ellefu svo endurnýjun er afar mikil.
Lagabreytingar
Tillögur að því að hámarksetuárasetufjöldi forseta og stjórnar manna væru 8 ár og að stjórnarmenn gæti ekki þegið laun voru báðar felldar á afgerandi hátt. Fóru þær tillögur fram fyrir stjórnarkjör eftir dagskrátillögu forseta þess efnis.
Tillögu um að áfram um að áfram yrði teflt yrði teflt í 10 liða efstu deild var felld með aðeins einu atkvæði (20-21). Það er því ljóst að sex liða úrvalsdeild á Íslandsmóti skákfélaga hefst árið 2021 eins og samþykkt var á aðalfundi á Akureyri 2019.
Nýr heiðursfélagi
Ásdís Bragadóttir var kjörin heiðursfélagi Skáksambandsins. Fyrsta konan í sögunni sem fær þann heiður. Hún starfaði með 11 forsetum og voru flestir þeirra viðstaddir fundinn.
Nánari frétt um aðalfundinn verður birt fljótlega.















