Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2542) tapaði fyrir tékkneska alþjóðlega meistaranum Karel Malinovsky (2459) í þriðju umferð alþjóðlegs móts sem fram fer í Budejovice í Tékklandi. Hannes hefur enn ekki náð sér á strik og hefur hálfan vinning.
Fjórða umferð fer fram í dag. Þá teflir Hannes við þýska alþjóðlega meistarann Lev Yankelevich (2461).
Tíu keppendur, og þar á meðal fjórir stórmeistarar, taka þátt og tefla allir við alla. Hannes er fjórði í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
- Auglýsing -
















