Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2542) gerði jafntefli við tékkneska stórmeistarann Peter Michalik (2585) í sjöundu umferð alþjóðlega mótsins í Budejovice í Tékklandi. Hannes hefur 3 vinninga.
Áttunda og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Þá teflir Hannes við Tékkann Jan Mikes (2373).
Tíu keppendur, og þar á meðal fjórir stórmeistarar, taka þátt og tefla allir við alla. Hannes er fjórði í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
- Auglýsing -















