Skáksambandið, Taflfélag Reykjavíkur og yfirdómari mótsins höfðu undirbúið salinn og tryggt nægt rými fyrir alla. Sjaldan hefur málbandið verið mikilvægara í undirbúningi skákmóts.

Covid-19 hefur sett strangari skilyrði en sjálfur Bobby Fischer gæti hafa fundið upp á. Nú eru það ekki birtuskilyrði og hljóð sem eru höfuðóvinir skákmannsins! Hanskar, grímur og sótthreinsiefni þurfa að vera á sínum stað!

Varaforseti Skaksambandins og sóttvarnarfulltúi þess – Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, setti mótið og fór yfir sóttvarnarreglurnar. Hún þekkir reglurnar betri en flestir vegna starfsins á Landsspítala og kom þeim mjög vel til skíla.

Robert Lagerman – yfirdómari mótsins fór svo yfir keppnisreglurnar – sem betur fer hefur
Covid-19 ekki breytt mannganginum. Einungis ytri umgjörð mótsins er frábrugðin.

Eini erlendi gesturinn er Oliver Bewersdorff – sterkur Þjóðverji. Hann ætlaði að keppa á Reykjavík open í vor og þegar það féll niður ákvað hann að koma hér í frí og svo í framhaldi fá tækifæri til að tefla. Hann er stigahæsti maður mótsins og vann skyldusigur á móti Sigurði J. Sigurðssýni.

Lenka Ptáčníková á öðru borði var heldur ekki í teljandi vandræði með sinn andstæðing – Hjálmar Sigvaldason.Við verðum að reikna með að þessi tvö fá harða samkeppni frá ungu mönnunum t.d. Mai-bræðrum, Pétri Palma Harðarsýni, Arnari Milutin Heidarssýni, Benedikt Briem og fleirum.

Fyrsti umferð miðast oft við að sterkara skákmenn vinna gegn þeim lakari – enn með undantekningum. Undantekningarnar voru: Arnar Logi Kjartansson vann Óskar Maggason – engin djúpsprengja kannski – ungu strákarnir í Breiðablíki eru í mikilli framför.

Lengstu skákir dagsins tefldi Adam Omarsson við Aron Þór Mai og Birkir Hallmundarsson við Hörð Jónasson. Ungu strákarnir Adam og Birkir bárðust báðir mjög vel en yrði að lokum að lúta í dúk.

Hið versta grikk sem covid-19 hefur gert okkur eru hinsvegar ekki sóttvarnarreglurnar – en frekar að hann hefur stöðvað Birnukaffí. Veitingar eru bannaðar – og þar með er helsti staðurinn til að hittast yfir kaffí og kökur lokaður. Keppendur þurfa þessvegna að koma með nesti með sér.

Krístján Örn Elíasson fær sérstakar þakkir. Hann bæði keppir og sér um beinar útsendingar á netið.

 

Fjögur efstu borðin eru sýnd beint í hverri umferð.

- Auglýsing -