Skáksamband Íslands hefur sett sínar sóttvarnarreglur vegna Covid-19. Þær voru unnar eftir leiðbeiningar um sóttvarnarreglur fyrir aðildarfélög ÍSÍ.
Reglurnar hafa verið uppfærðar í samræmi við ábendingar frá embætti sóttvarnarlækni. Breytingarnar er feitletraðar.
Skákþing Íslands er sett upp í samræmi við þessar reglur.
Aðildarfélögum SÍ er ekki heimilt að halda skákmót/æfingar nemi að þau fari í öllu leyti eftir þessum reglum.
Helstu atriði
- Tryggja þarf að spritt sé aðgengilegt fyrir keppendur og starfsmenn
- Gæta skal 2ja metra reglunnar milli allra nema þeirra sem tefla saman
- Fækka skal sameiginlegum snertiflötum eins og hægt er
- Ef skákstjóri/þjálfari hefur afskipti af keppendum skal hann hafa grímu
- Sótthreinsa þarf allan skákbúnað á milli umferð og sameiginlega snyrtifleti a.m.k. daglega – helst oftar.
- Áhorfendur ekki velkomnir í skáksal
- Ekki er hægt að bjóða upp á sameiginlegar veitingar
- Séu keppendur/starfsmenn með grun um veikindi eiga þeir að halda sig heima
- Keppendur og starfsmenn eru beðnir um að halda 2ja metra regluna í fjölmenni utan skákstaðar eða nota annars grímu.
Ekkert kemur betur í veg fyrir smit en persónulegar smitvarnir. Mótshaldar hvetja keppendur á Skákþinginu til
- Nota reglulegan handþvott
- Spritta sig fyrir og eftir skák og oftar eftir þörfum
- Takast ekki í hendur við upphaf og lok skákar
- Yfirgefa skákstað strax að lokinni skák
- Forðast sameiginlega snertifleti
- Koma með eigin penna og eigin veitingar
Rými fyrir áhorfendur/foreldra verður í sal Skákskóla Íslands og þar einnig sérsalerni. Keppendur eru beðnir um að fara ekki inn í það rými.
Þótt að okkur þyki sumt að þessu íþyngjandi skulum við ekki gleyma því að það eru forréttindi fyrir okkur að fá að tefla!
Gerum þetta saman – við erum öll almannavarnir!
Sóttvarnarreglur SÍ vegna COVID-19
















