Wesley So (2770) er efstur eftir atskák-hlutann á Saint Louis-mótinu sem gangi er á Lichess. So hefur 13 stig af 18 mögulegum. Magnús Carlsen (2863) og Ian Nepomniachtchi (2784) eru í 2.-3. sæti með 12 stig.
Í kvöld hefst hraðskákin og hefst taflmennskan kl. 18.
Sjá nánar á Chess.com.
Mótið fer fram 15.-19. september. Fyrstu þrjá dagana (15.-17.) eru tefldar atskákir (25+5), einföld umferð, þar sem vinningarnir telja tvöfalt. Seinni tvo dagana (18. og 19.) eru tefldar hraðskákir (5+3), tvöföld umferð þar sem vinningarnir gilda einfalt.
- Auglýsing -


















