Flestir verðlaunarhafar Breiðabliks á mótinu.

Íslandsmót ungmenna fór fram síðustu helgi og tóku um 40 iðkendur Skákdeildar Breiðabliks þátt á mótinu.

Stóðu þau sig frábærlega og náðu alls 12 verðlaunum og þar af 5 Íslandsmeistaratitlum. Keppt var í flokkum U8, U10, U12 og U14/U15.

Myndir af verðlaunahöfum Breiðabliks má finna á heimasíðu skákdeildarinnar.

- Auglýsing -