Skákdeild Fjölnis heiðraði unga afrekskrakka sem náðu verðlaunasæti eða voru í hópi efstu þátttakenda á Íslandsmóti U12 – U8 um síðustu helgi. Daði í GULLNESTI í Grafarvogi færði þeim öllum gjafabréf fyrir girnilegri hamborgara-máltíð.

Það var á fjölmennri fimmtudagsæfingu skákdeildarinnar sem Helgi Árnason formaður deildarinnar afhenti níu skákmeisturum gjafabréfin góðu. Skákdeild Fjölnis óskar þessum efnilegu skákkrökkum til hamingju með góðan árangur og þakkar Daða og GULLNESTI fyrir stuðninginn.

- Auglýsing -