Jólamót Skákdeildar Breiðabliks fór fram föstudaginn 18. desember á chess.com. Mótið var vel sótt en rúmlega 30 keppendur skráðu sig til leiks.
Fyrirkomulag mótsins var þannig að fyrst var tefld 7 umferða undankeppni með tímamörkunum 3+2. Efstu átta keppendurnir komust áfram í úrslitakeppni. Í átta manna úrslitin komust Benedikt Briem, Mikael Bjarki Heiðarsson, Guðrún Fanney Briem, Sigurður Páll Guðnýjarson, Gunnar Erik Guðmundsson, Birkir Hallmundarson, Matthías Björgvin Kjartansson og Tómas Möller.

Þessir keppendur mættust svo í útsláttarkeppni sem var gríðarlega spennandi.

Tefld voru tveggja skáka einvígi, aftur með umhugsunartímanum 3+2. Bráðabanaskák þurfti til í nokkrum einvígjunum.

Eftir harða keppni var það Gunnar Erik Guðmundsson sem stóð uppi sem sigurvegari í lokaeinvíginu gegn Benedikt Briem. Gunnar Erik er vel að sigrinum kominn, hefur æft vel í vetur og tekið stöðugum framförum.

Sýnt var beint frá mótinu með skákskýringum Björns Ívars Karlssonar, eins af þjálfurum Skákdeildar Breiðabliks, og Birkis Karls Sigurðssonar yfirþjálfara deildarinnar. Birkir Karl kom inn á það í útsendingunni að nemendur Skákdeildarinnar ættu hrós skilið fyrir dugnað og eljusemi í vetur. Miklar framfarir hafi átt sér stað þrátt fyrir takmarkanir á hefðbundnum æfingum. Kennsla hafi færst yfir á netið og nemendur hafi tekið virkan þátt í henni og framfarirnar hafi verið í takt við það.
Styrktaraðilar mótsins MótX, Heimilistæki og Green Diamond veittu glæsileg verðlaun.
Verðlaunahafar voru:
- Gunnar Erik Guðmundsson JBL-Charge Black Bluetooth hátalari (að verðmæti 25þús)
- Benedikt Briem Quantum 400 leikjaheyrnatól (að verðmæti 16 þús)
- Mikael Bjarki Heiðarsson True Go Slim Heyrnatól (að verðmæti 10 þús)
Aldursflokkaverðlaun
2010-2012: Guðrún Fanney Briem 8000 kr. gjafabréf í Smáralind
2013 og yngri: Birkir Hallmundarson 8000 kr. gjafabréf í Smáralind
Besta skákin:
Kormákur Ólafur Kjartansson fyrir sigur gegn stóra bróður sínum
Happdrættisverðlaun (Jólasveinar frá Heimilistækjum):
Viktor Elías Eyþórsson
Arnar Freyr Orrason
Sigurður Páll Guðnýjarson
Halldóra Jónsdóttir
Benedikt Nói Arngrímsson
Skákdeild Breiðabliks þakkar keppendum á mótinu fyrir þátttökuna og styrktaraðilum fyrir rausnarlegan stuðning við mótshaldið.
Upptökur af beinu útsendingunni má sjá hér:
















