Undankeppni EM taflfélaga í netskák – kvennaflokki hófst í gær. Tvö íslensk skákfélög, Skákfélagið Huginn og Skákdeild Fjölnis, taka þátt í mótinu. Tefldar voru þrjár fyrstu umferðirnar af sjö.

Góður sigur Hugins á enska klúbbnum Wood Green England stóð upp úr í gær. Huginsstúlkurnar unnu þær ensku 3-1 þrátt fyrir að vera mun stigalægri á öðru borði. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir unnu sínar skákir en Lenka Ptácníková (2130) og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (1984) gerðu jafntefli.

Í hinum tveimur viðureignum kom einn vinningur í húsi og er Huginn í sjötta sæti átta sveita í c-undanrásum.
Sjá nánar á Chess-Results

Fjölnir teflir b-undanrásum og er sveitin enn ekki kominn á blað enda búin að mæta afar sterkum sveitum og meðal annars sveita sem hafði tvær af allra sterkustu skákkonum heims í sínu liði. Önnu Muzychuk (2535) og Önnu Ushenina (2416).
Sjá nánar á Chess-Results
Flestar skákkonurnar tefla í húsnæði Skákskólans, Faxafeni 12.
Fjórar síðustu umferðir undankeppninnar fer fram í dag. Taflmennskan hefst kl. 13:30. Best er að fylgjast með henni á Tornelo eða Chessbase. Huginn teflir í b-riðli en Fjölnir í c-riðli.
ECU býður upp á beinar lýsingar frá mótinu.
Nánar um mótið á heimasíðu ECU.














