Jóhanna Björg skákkennari og landsliðskona. Mynd: Lisseth

Undankeppni EM taflfélaga í netskák fór fram í kvennaflokki um helgina. Frammistaða íslensku liðanna var afskaplega góð. Skákfélagið Huginn endaði í efri hluta c-riðils þrátt fyrir að vera næststigalægsta liðið á stigum og Skákdeild Fjölnis gekk mjög vel á síðari keppnisdegi í b-riðli þrátt fyrir að vera stigalægsta liðið á stigum. Þess má að liðin tvö voru tvö einu norrænu liðin sem þátt tóku.

Huginn endaði í fjórða sæti

Skákfélagið Huginn endaði í fjórða sæti c-riðli undankeppnina en fyrirfram var liðinu raðað í sjöunda og næstneðsta sæti riðilins á skáksitugm. Liðið hlaut 7 stig af 14 mögulegum.

Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (2009) og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1935) stóðu sig báðar frábærlega og hlutu 4 vinninga í umferðun sjö þrátt fyrir að hafa teflt upp fyrir sig í flestum umferðum. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (1984) tefldi á sínu fyrsta móti í mörg herrans ár (ekki átt reiknað skák síðan 2012) stóð sig afar vel á fjórða borði og hlaut 3 vinninga. Lenka Ptácníková (2130) náði sér ekki á strik.

Sjá nánar á Chess-Results

Fjölnir endaði í sjöunda sæti

Sigríður Björg stóð sig vel á síðari degi eins og stöllur sínar í Fjölni.

Fyrri keppnisdagurinn (3 umferðir) var erfiður fyrir Fjölni enda mætti sveitin þá flestum sterkstu sveitum mótsins. Mun betur gekk hins vegar síðari daginn þegar ein viðureign vannst og vinningar komu í hús í hverri umferð.

Hrund Hauksdóttir (1819) hlaut 2½ vinning. Lisseth Acevedo Mendez (1845) og Sigríður Björg Helgadóttir (1641) fengu 2 vinninga. Tinna Kristín Finnbogadóttir (1843) var í því erfiða hlutskipti að tefla á fyrsta borði og tefldi við mun stigahærri andstæðinga í hverri umferð.

Sjá nánar á Chess-Results

Flestar íslensku skákkvennanna tefldu í SÍ.

Nánar um mótið á heimasíðu ECU.

- Auglýsing -