Minnt er á jólamót Víkingaklúbbsins í kvöld mánudag kl 20.00. Hefbundið föstudagsmót féll niður á jóladag og mun falla niður á nýjársdag. Á jólamótinu verða tefldar verða 10 umferðir (swiss) með tímamörkunum 3+2. Peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin og verðlaunapeningur fyrir þrjá efstu Víkinga. Jólamót Víkingaklúbbsins hefur verið haldin í raunheimum síðasta áratug, en faerist á netið í ár út af dálítlu. Engin Víkingaskák verður þetta árið vegna taekniörðuleika.
Verðlaun:
  1. 15.000
  2. 10.000
  3. 5.000
Linkur á mótið hér:
Föstudaginn 19. desember var arena mót þar sem telfdar voru skákir með umhugsunartímanum 4 0. Vignir Vatnar tók snemma forustuna og hélt henni þar til í lokin, þegar hann datt út, virðist hafa misst netið. Bragi Halldórsson sem hefur verið sigursaell, lenti í taeknivandraedum og á lokametrunum náði Gunnar Fr. að skjóta sér í efsta saetið. Vignir Vatnar varð annar og Halldór Kristjánsson þriðji. Alls tóku 18 kependur þátt.
- Auglýsing -