Frá fyrstu umferð. Mynd: Ríkharður Sveinsson.

Stórmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2576), er efstur með 4½ vinning að lokinni fimmtu umferð Skákþings Reykjavíkur sem fram fór í gær. Sex keppendur koma humátt á eftir Hjörvari með 4 vinninga eftir spennandi umferð í gær.

Helstu úrslit 5. umferðar

Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1935) og Gauti Páll Jónsson (2081) gerðu jafntefli í afar sérstakri skák þar sem varaformaður TR (Gauti) var lengi vel hróki yfir en sterk frípeð varaforseta SÍ (Jóhönnu) tryggðu henni nægt mótspil til að halda jafntefli. Afar spennandi skák. Hjörvar Steinn tók hálfs vinnings yfirsetu. Mikið um jafntefli á efstu borðum.

Röð efstu manna

Hjörvar er efstur með 4½ vinning. Auk Gauta og Jóhönnu hafa Vignir Vatnar Stefánsson (2314), Guðmundur Kjartansson (2488). Stephan (2102) og Benedikt Briem (1864) 4 vinninga.

Helstu viðureignir sjöttu umferðar

Sjötta umferð fer fram á morgun. Hjörvar teflir við Stephan Briem á fyrsta borði, Guðmundur mætir Benedikt, bróður hans, Vignir teflir við Jóhönnu Björg og Gauti Páll og Davíð Kjartansson mætast.

- Auglýsing -