Íslandsmót grunnskólasveita – stúlknaflokkur fer fram í Skákhöllinni, Faxafeni 12, laugardaginn í dag. og hefst kl. 14. Þar sem Covid-reglur bannar allar heimsóknir forráðamanna á skákstað er ágætt að upplýsa hvernig sé að fylgjast með í snjallsímanum! Alls taka 26 sveitir þátt.
Húsið opnar fyrir keppendur og liðsstjóra kl. 12:40 og skulu allir notast við innganginn að Taflfélagi Reykjavíkur (framendi hússins). Keppendur í 3.-5. bekk tefla í TR-salnum en hinir tveir flokkarnir tefla í Skákskólasalnum.
Fyrsti og annar bekkur.
Fimm sveitir taka þátt og tefla allar við alla. Teflt er með tímamörkunum 4+2. Það má gera ráð fyrir að verðlaunaafhendingu verði lokið um kl. 15:15.
Hægt er að fylgjast með úrslitunum jafnóðum á Chess-Results.
Þriðji til fimmti bekkur.
Fimmtán sveitir taka þátt og tefldar verða sex umferðir eftir svissneska kerfinu með umhugsunartímanum 6+2. Það má gera ráð fyrir að verðlaunaafhendngu verði lokið um kl. 16:00.
Hægt er að fylgjast með úrslitunum jafnóðum á Chess-Results.
Sjötti til tíundi bekkur.
Sex sveitir taka þátt og tefla allar við alla. Teflt er með tímamörkunum 8+2. Það má gera ráð fyrir að verðlaunaafhendngu verði lokið um kl. 16:00
Hægt er að fylgjast með úrslitunum jafnóðum á Chess-Results.
Teknar verða myndir af öllum sveitum mótsins og verður tengill á þá birtur í frétt með öll úrslitunum í kvöld eða í fyrramálið.
















