
Anish Giri (2764) er einn efstur á Tata Steel-mótinu að lokinni elleftu umferð umferð sem fram fór í gær. Giri gerði jafntefli við Magnús Carlsen (2862) og þar með er slokknað á öllum sigurvogum heimsmeistarans. Aryan Tari (2625) og Jordeen Van Foreest (2671) voru einu siguvegarar gærdagsins. Tari vann Andrey Esipenko (2677) sem hefur heldur betur slegið í gegn á sínu fyrsta stórmóti.

Anish hefur hálfs vinnings forskot á Van Foreest og Fabiano Caruana (2823) og Alireza Firouzja (2749) sem gerðu jafntefli í afar skemmtrilegri skák. Esipenko er svo fimmti með hálfum vinningi minna. Carlsen sjötti með 1,5 vinningi á eftir Giri.
Tóflta og næstsíðasta umferð fer fram í dag. Þá fara fram tvær skákir á mili efstu manna. Forystusauðurinn Giri teflir við Firouzja og Van Foreest mætir Esipenko. Caruana mætir David Anton (2679) sem er meðal neðstu manna og fær gullið tækifæri.
Nánar á Chess24.
Mótstaflan















