Frá fyrstu umferð. Mynd: Ríkharður Sveinsson.

Stórmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2576), hefur hálfs vinnings forskot á Guðmund Kjartansson (2488), Vigni Vatnar Stefánsson (2314) og Gauta Pál Jónsson (2081) að lokinni sjöttu umferð Skákþings Reykjavíkur sem fram fór í gærkveldi.

Helstu úrslit 6. umferðar

Það var gott að hafa hvítt í gær og unnust orysturnar á fjórum fyrstu borðunum á hvítt. Gauti Páll vann glæsilegan sigur á Davíð Kjartanssyni (2326) í fórnarskák á þriðja borði.

Röð efstu manna

Hjörvar er efstur með 5½ vinning. Guðmundur Kjartansson (2488), Vignir Vatnar Stefánsson (2314) og Gauti Páll Jónsson (2081) hafa 5 vinninga. Þrír skákmenn hafa 4½ vinning.


Helstu viðureignir sjöundu umferðar

Sjöunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 13. Hjörvar teflir við Vignir Vatnar og Guðmundur mætir Gauta Páli.

 

- Auglýsing -