
Fimm keppendur hafa tölfræðilegan möguleika á sigri á Tata Steel-mótinu þegar aðeins lokaumferðin á eftir að fara fram. Anish Giri (2764) er efstur með 8 vinninga, Jordeen Van Foreest (2671), Alireza Firouzja (2749), Fabiano Caruana (2823) hafa 7½ vinning og Andrey Esipenko (2677) hefur 7 vinninga en möguleikar hann byggjast á því að Giri tapi og enginn hinna vinni.
Pentala Harikrishna (2732) vann Alexander Donchenko (2668) en öðrum skákum lauk með jafntefli í gær. Giri var afar nærri því að leggja Firouzja að velli.
Þrettánda og síðasta umferðin fer fram í dag og hefst fyrr en vanalega eða kl. 11. Efstu menn tefla ekkert saman í lokaumferðinni!
Giri teflir David Anton (2679), Van Foreest við Nils Grandelius (2623), Caruana við Aryan Tari (2625), Firouzja við Radoslaw Wojtaszek (2705) og Esipenko við Donchenko (2668). Í venjulegru árferði fengi skák Magnúsar Carlsen (2862) og líklegs áskorenda MVL (2784) mestu athygli.
Nánar á Chess24.
Hvað gerist ef tveir eða fleiri verða efstir og jafnir?

Mótstaflan

Heimasíða mótsins












