Nær Margeir að jafna metin gegn Guðmundi? Mynd: GB

Síðari kappskák 1. umferðar (8 manna úrslita) hefst kl. 14. Vignir Vatnar Stefánsson, Bragi Þorfinnsson, Helgi Áss Grétarsson og Margeir Pétursson eru allir upp við vegg og þurfa að sigra í dag til að komast í framlengingu sem fram fer á morgun.

Vignir þarf að leggja Hjörvar að velli með svörtu til að komast í framlengingu.

Bragi, Helgi Áss og Margeir fá allir hvítt en Vignir fær svart á móti Hjörvari.

Skákir dagsins

  1. Hjörvar Steinn Grétarsson – Vignir Vatnar Stefánsson
  2. Bragi Þorfinnsson – Hannes Hlífar Stefánsson
  3. Helgi Áss Grétarsson – Jóhann Hjartarson
  4. Margeir Pétursson – Guðmundur Kjartansson

Mótið er beint á öllum helstu miðlum heims eins og Chess24, Chess.com, FollowChess og Chessbomb.

Bein lýsing (Björn Ívar og Ingvar) – hefst um kl. 15

- Auglýsing -