Íslandsmótið í skák 2021 fer fram við glæsilegar aðstæður í Kársnesinu í Kópavogi (húsnæði Siglingafélagsins Ýmis) dagana 22.-30. apríl. Um er að ræða eitt allra sterkasta Íslandsmót sögunnar en sex stórmeistarar taka þátt í landsliðsflokki. Mótshaldið er samvinnuverkefni Skáksambands Íslands og Skákdeildar Breiðabliks.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, setur mótið á morgun og leikur fyrsta leik þess. Teflt er daglega og hefst taflmennskan ávallt kl. 15.
Meðal keppenda eru Hjörvar Steinn Grétarsson sem nýlega vann sigur í Íslandsbikarnum og ávann sér keppnisrétt í Heimbikarmótinu í skák, Guðmundur Kjartansson, sem fyrir skemmstu varð fimmtándi stórmeistari Íslendinga, Hannes Hlífar Stefánsson, þrettánfaldur (!) Íslandsmeistari í skák og Jóhann Hjartarson, einnig margfaldur Íslandsmeistari. Helgi Áss Grétarsson, Íslandsmeistarinn frá 2018, og Bragi Þorfinnsson fylla svo flokk stórmeistaranna.
Keppendalistinn (skákstig í sviga)
- Hjörvar Steinn Grétarsson (2588) – stórmeistari í skák
- Hannes Hlífar Stefánsson (2532) – stórmeistari í skák
- Jóhann Hjartarson (2523) – stórmeistari í skák
- Guðmundur Kjartansson (2503) – stórmeistari í skák
- Helgi Áss Grétarsson (2437) – stórmeistari í skák
- Bragi Þorfinnsson (2432) – stórmeistari í skák
- Björn Þorfinnsson (2384) – alþjóðlegur meistari
- Sigurbjörn Björnsson (2327) – FIDE-meistari
- Vignir Vatnar Stefánsson (2327) – FIDE-meistari
- Alexander Oliver Mai (2025)
Vegna sóttvarnareglna geta áhorfendur ekki mætt á skákstað. Að sjálfsögðu verður boðið verður upp á mjög þéttan útsendingarpakka.
Boðið verður upp á útsendingar á öllum helstu miðlum heims (Chess24, Followchess, Chessbomb o.s.frv.).
Skákvarpið, í umsjón Ingvars Þórs Jóhannessonar, verður starfrækt alla daga. Sú þjónusta sem hófst í Íslandabikarnum að hafa skákmennina í beinni á meðan teflt er – verður að sjálfsögðu áfram í boði. Væntanlega verða góðir gestir með Ingvari í Skákvarpinu. Chess After Dark verða einnig á svæðinu og munu taka viðtöl við keppendur sem verða birt eftir mótið.
Dregið verður um töfluröð kl. 15 í dag og verður hún birt á Chess-Results þegar hún liggur fyrir.
Kópavogur, Arion banki, Brim og Teva styðja á myndarlegan hátt við mótshaldið.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skákvarpið – tengill væntanlegur
- Beinar útsendingar (heimasíða) – tengill væntanlegur
- Beinar útsendingar (Chess24) – tengill væntanlegur
- Beinar útsendingar (Followchess) – tengill væntanlegur
















