Önnur umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 15 í dag. Hart var barist í gær engri skák lauk með jafntefli. Það má gera ráð fyrir að hörkuviðureignum í dag en þá mætast meðal annars Jóhann Hjartarson og Hjörvar Steinn Grétarsson og Bragi Þorfinnsson og Helgi Áss Grétarsson.

Pistill Björns Þorfinnssonar á Vísi um fyrstu umferð. 

Viðureignir dagsins:

  • Jóhann Hjartarsson (1) – Hjörvar Steinn Grétarsson (1)
  • Bragi Þorfinnsson (1) – Helgi Áss Grétarsson (1)
  • Björn Þorfinnsson (1) – Hannes Hlífar Stefánsson (0)
  • Guðmundur Kjartansson (0) – Sigurbjörn Björnsson (0)
  • Vignir Vatnar Stefánsson (0) – Alexander Oliver Mai (0)

Skákvarpið

Vefútsending hefst kl. 15 og skákskýringar Ingvars Þórs Jóhannessonar á milli 16:00 og 16:30.

Umfjöllun Ingvars um skák dagsins í gær

Kópavogur, Arion banki, Brim og Teva styðja á myndarlegan hátt við mótshaldið.

Helstu tenglar

- Auglýsing -