Það verða Levon Aronian og Vladislav Artemiev sem mætast í úrslitum asíaska gullmótsins á Chess24. Báðir komu þeir til baka eftir að hafa tapað fyrsta einvíginu og unnu það síðara. Þá var teflt til þrautar í hraðskák þar sem þeir unnu báðir. Aronian vann Carlsen 2-0 í hraðskákinni.
Fyrra einvígi úrslitanna fer fram í dag. Carlsen og Ding Liren tefla um þriðja sætið. Mótinu lýkur svo á morgun.
- Auglýsing -

















