Ein viðureign þarf að fara í bráðabana eftir æsispennandi seinni skákir í einvígjum sjöttu umferðar á Heimsbikarmótinu. Heimsmeistarinn Magnus Carlsen er kominn áfram eftir sigur á Etienne Bacrot og mætir hann Pólverjanum Jan Krzysztof-Duda sem lagði Indverjann Vidit í sinni viðureign. Rússinn Vladimir Fedoseev bíður sigurvegara í bráðabana einvígi þeirra Sergey Karjakin og Sam Shankland.
Allar skákirnar í dag hjá körlunum unnust með hvítu mönnunum!
Úrslit dagsins í seinni skák 6. umferðar
- Bacrot – Carlsen 0-1 (alls 0-2)
- Karjakin – Shankland 1-0 (alls 1-1)
- Fedoseev-Tabatabaei 1-0 (alls 1½-½)
- Duda-Vidit 1-0 (alls 1½-½)
Feioseev lagði Tabatabaei í þungri skák….það vakti athygli þegar hann fagnaði áður en skákinni lauk!
Vladimir Fedoseev after Amin Tabatabaei's 77…Rxg3 mistake in a dramatic endgame at the World Cup. An instant 78.Be5+ followed and White wins with a nifty trick: 78…Kc6 79.Ra6+ and White takes on e6 next. https://t.co/mLmJbEF28P pic.twitter.com/FeavSDxZ0o
— Olimpiu G. Urcan (@olimpiuurcan) July 29, 2021
Hvítur á leik og vinnur í stöðunni….Fedoseev hafði séð þetta og fagnaði því!
Loks vann Karjakin eftir glæsilega sóknarskák
Undanúrslit Heimsbikarmóts kvenna hófust í dag, báðum skákum lauk með jafntefli.
- Anna Muzychuk -Goryachkina ½-½
- Tan Zhongyi – Kosteniuk- ½-½
Skákirnar fylgja hér:
Baráttan heldur áfram á morgun og hefst sem fyrr klukkan 12:00!
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)

















