Fjölmargir íslenskir meistarar sitja að tafli í Evrópu. Uppskera okkar manna í gær, fimmtudag var vægast sagt dræm. Engin okkar manna vann skák.
Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2359), teflir á sínu öðru alþjóðlega móti í Arandjelovac í Serbíu.
Í áttundu og næstsíðustu umferð tapaði Vignir fyrir rússneska alþjóðlega meistaranum, með stórmeistarastyrkleikann, Semyon Lomasov (2525). Þetta var þriðja tap Vignis í röð eftir ágætis byrjun.
Vignir teflir í þremur 10 manna lokuðum flokkum í Serbíu. Meðalstigin í öðru mótinu, sem nú er í gangi, eru 2425 skákstig. Vignir er næststigalægstur keppenda.
Czech Open er í gangi í Pardubice í Tékklandi. Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2517) og Guðmundur Kjartansson (2496) eru meðal keppenda.
Sjöunda umferð fór fram í gær. Hannes gerði jafntefli við tékkneska FIDE-meistarann Jakub Kusa (2315) en Guðmundur gerði jafntefli við pólska FIDE-meistarann Franciszek Sernecki (2211). Hannes hefur 4,5 vinninga en Guðmundur hefur 3,5 vinning.
149 keppendur taka þátt í efsta flokki Czech Open og þar af eru 15 stórmeistarar. Hannes er áttundi í stigaröð keppenda en Guðmundur sá ellefti.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
FIDE-meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2317) tekur þátt í alþjóðlegu móti í Árósum í Danmörku.
Í gær fóru fram ein umferð og tapaði Hilmir fyrir danska skákmanninum Mogens Thuesen (2178). Hilmir hefur 2 vinninga eftir 5 umferðir.
Átján keppendur taka þátt í mótinu og þar á meðal fjórir alþjóðlegir meistarar. Hilmir er fimmti í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Úrlsitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 16:30).
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2516) tekur þátt í Þýskalandsmóti öldunga (50+) sem fram fer í 23.-31. júlí í Magdeburg.
Henrik gerði jafntefli í 7. umferð. Hann er í 1-3. sæti með 5,5 vinninga.
68 keppendur taka þátt. Henrik er langstigahæstur keppenda.

















