Henrik Danielsen að tafli á Reykajvíkurskákmótinu.

Skak.is heldur áfram að fylgjast með árangri íslenskra skákmanna á erlendri grundu. Íslensku meistararnir voru enn að í gær laugardag og hér er yfirferð yfir árangur þeirra:

Alþjóðlegi meistarinn, Vignir Vatnar Stefánsson (2359), hóf sitt þriðja alþjóðlega mót í Arandjelovac í Serbíu. Vignir endaði annað mótið frekar illa og Skak.is skoraði á hann að safna vopnum og mæta sterkur til leiks í þriðja mótið. Vignir tók okkur á orðinu og hóf þriðja mótið á góðum sigri með svörtu mönnunum.

Serbneski FIDE-meistairnn Stefan Tadic (2390) lá í valnum og okkar maður fer vel af stað!

Vignir teflir í þremur 10 manna lokuðum flokkum í Serbíu. Meðalstigin í þriðja mótinu, sem var að hefjast, eru 2387 skákstig sem er örlítið veikara en fyrri mótin. Vignir er þriðji stigalægstur keppenda.

Sigurskák Vignis – Vignir vélaði drottninguna af andstæðingi sínum með snaggarlegri fléttu.

Czech Open lauk í gær í Pardubice í Tékklandi. Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2517) og Guðmundur Kjartansson (2496) voru meðal keppenda.

Lokaumferðin fór fram í gær. Hannes var ekki paraður en Guðmundur vann sigur á skákmanni frá Slóvakíu, Igor Lintner (2228). Hannes  og Guðmundur enduðu báðir með 4,5 vinning og töpuðu báðir skákstigum.

149 keppendur tóku þátt í efsta flokki Czech Open og þar af voru 15 stórmeistarar. Hannes var áttundi í stigaröð keppenda en Guðmundur sá ellefti. Þrír tékkneskir skákmenn deildu með sér sigrinum ásamt FIDE meistara frá Póllandi sem kom nokkuð á óvart.

Skák Guðmundar í lokaumferðinni:

FIDE-meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2317) tekur þátt í alþjóðlegu móti í Árósum í Danmörku.

Í gær fóru fram tvær umferðir þar sem Hilmir Freyr vann fyrri skákina en tapaði þeirri seinni. Hilmir hefur 3 vinninga að loknum 8 umferðum.

Átján keppendur taka þátt í mótinu og þar á meðal fjórir alþjóðlegir meistarar. Hilmir er fimmti í stigaröð keppenda.

Sigurskák Hilmis:

Tapskákin var klaufaleg, Hilmir var með nánast kolunnið tafl en lék mjög klaufalega af sér í lokin.

Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2516) vann sigur á  Þýskalandsmóti öldunga (50+) sem lauk í gær. Henrik hlaut 7.5 vinning í skákunum 9 og endaði vinningi fyrir ofan næsta mann.

Henrik vann sigur í lokaumferðinni þegar hann trikkaði drottninguna af andstæðingi sínum. Keppendur voru alls 68 og Henrik stigahæstur þeirra

- Auglýsing -