Vignir Vatnar heldur áfram að tefla af öryggi á þriðja lokaða móti sínu í Serbíu.
Í dag tefldi Vignri við stigahæsta skákmanninn og þann efsta, Vladimir Lazarev, og fékk svörtu mennina. Vignir hélt mikilvægu jafntefli í þessari skák.
Að loknum fimm umferðum samsvarar árangur Vignir 2586 skákstigum. Í síðustu fjórum umferðunum á Vignr eftir léttari andstæðinga á pappír og á því sinn besta séns á stórmeistaraáfanga hingað til í ferðinni!
Vignir teflir í þremur 10 manna lokuðum flokkum í Serbíu. Meðalstigin í þriðja mótinu, sem var að hefjast, eru 2387 skákstig sem er örlítið veikara en fyrri mótin. Vignir er þriðji stigalægstur keppenda.
Skákin:

- Auglýsing -
















