Vignir Vatnar að tafli á Íslandsmóti skákfélaga. Mynd: Ómar Óskarsson.

Það var upp og niður dagur hjá Vigni þegar 6. og 7. umferð fóru fram í lokaða stórmeistaramótinu í Serbíu.

Vignir vann fyrri skák dagsins og lyfti sér þar með í stigaárangur upp á 2601 sem nægir fyrir stórmeistaraáfanga, hefði Vignir þurfti 2,5 vinning í síðustu 3 umferðunum til að klára það.

Fyrri skákin var skemmtilegur pósa-sigur hjá Vigni gegn serbneska stórmeistaranum Miroslav Markovic (2353)

Því miður reyndist indverski alþjóðlegi meistarinn Nagpal Vaardan (2366) erfiður í seinni skákinni og gerði út um áfangasénsa Vignis á þessu móti.

Skák 6. umferðar

Tvær umferðir eru eftir og nú er bara að klára með stæl og lyfta sér yfir 2400 elóstigin!

- Auglýsing -