Vignir Vatnar Stefánsson gerði jafntefli við serbneska alþjóðlega meistarann Ivan Sredojevic (2284) í áttundu umferð á áfangamótinu í Serbíu. Áfangasénsar voru úr sögunni á þessu móti eftir tap í 7. umferð í gær.

Vignir vann peð en stóð annars höllum fæti sökum lélegar kóngsstöðu. Líklegast hefur Vignir verið jafnteflinu feginn í lokastöðunni.

Ein umferð er nú eftir af mótinu sem lýkur á morgun. Vignir heldur eftir það í víking til Svíþjóðar ásamt fleiri íslenskum skákmönnum.

- Auglýsing -