Jan-Krzysztof Duda varð í dag Heimsbikarmeistari með því að leggja Sergey Karjakin að velli á glæsilegan hátt. Jafntefli varð í fyrri skákinni en Duda stýrði hvítu mönnunum af fítonskrafti í skák dagsins og uppskar titilinn.

Magnus Carlsen lét ekki á sig fá að hafa fallið út í undanúrslitum og tefldi hreint út sagt stórkostlegt einvígi gegn Vladimir Fedoseev þar sem Magnus sundurspilaði Rússann svo illa að hann gæti þurft áfallahjálp.

Byrjum á að líta á einvígi Magnúsar áður en við færum okkur í meistarann.

Fyrri skákin bauð upp á nánast ódauðlega leikþröng

Frábær skák, hér skýrð á ensku:

Á einhvern ótrúlegan hátt náði Magnús AFTUR að skilja andstæðinginn eftir skiptamun yfir en með enga von, hreint út sagt magnað!

Einnig skýrð hér:

Taflmennska Magnúsar leit mjög vel út á mótinu og hann styrki stöðu sína sem skákmaður #1 í heiminum.

Magnús hagnaðist um 8 stig á mótinu og eru núna 56 elóstig í næsta mann, hvorki meira né minna!

En þá að Heimsbikarmeistaranum!

Duda og Karjakin við upphaf skákar

Fyrri skákin í gær var vægast sagt tíðindalítil og leyfði Karjakin með hvítu þrátefli snemma tafls og því um stutta skák að ræða.

Duda fékk því fínan séns í dag að tefla til vinnings með hvítu og hann gerði það svo sannarlega og með stæl!

Eftir að hafa sett fína pressu á Karjakin var 25.Hd7! mjög smekklegur leikur!

Öll skákin hér:

Einnig skýrð hér á ensku:

Heimsmeistarinn hafði ekkert nema gott um sigurvegara mótsins að segja:

Allt viðtalið:

Viðtal við sigurvegarann:

Duda lyftir sér upp í 13. sæti Heimslistann og árangur hans á mótinu glæsilegur!

Frétt Chess.com

- Auglýsing -