Stór skákhátíð hófst í dag í Uppsölum í Svíþjóð. Íslendingar eiga fjölmarga fulltrúa og verður farið yfir gengi þeirra í dag. Teflt er í GM flokki, tveimur IM flokkum, opnu móti auk fjölda hliðarmóta. Íslendingar eiga keppendur í báðum IM flokkunum auk opna mótsins.
Íslensku keppendurnir fóru vel af stað í opna flokknum. Þeir sem tefldu niður fyrir sig unnu sínar skákir en það voru þau: Hörður Aron Hauksson, Hrund Hauksdóttir, Jóhann Arnar Finnsson, Tinna Kristín Finnbogadóttir og Lisseth Acevedo Mendez. Þeir sem tefldu upp fyrir sig töpuðu sínum skákum en það voru Kristján Dagur Jónsson og Jón Úlfur Hafþórsson.
Hér eru nokkrar myndir úr opna flokknum:




Í IM flokkunum kom aðeins einn vinningur í hús af þremur.
Í IM flokki I tapaði Hilmir Freyr sinni skák gegn CM Axel Falkevall (2229).
Í IM flokki II tapaði Dagur Ragnarsson gegn CM Leo Crevatin (2160). Hvort að Leo hafi verið svona kreatívur eða einfaldlega verið búinn með stóra skammt af Creatíni skal ósagt látið en Dagur þurfti allavega að lúta í dúk.

Eina sigurskákin í IM flokkunum kom frá Vigni Vatnari sem kemur vel rútíneraður frá Serbíu. Andstæðingur Vignis beitti kerfi sem Vignir hefur sjálfur notað með hvítu mönnunum og því var hann vel í stakk búinn að mæta þessu byrjanakerfi.

Taflið heldur áfram á morgun en þá er tefld tvöföld umferð í IM flokkunum og ein umferð í opna flokknum.
- Úrslit í opnum flokki
- Úrslit í IM flokki I (Hilmir)
- Úrslit í IM flokki II (Vignir og Dagur)
- IM flokkur II á Chess24
- IM flokkur I á Chess24


















