Símon Þórhallsson er einn efstur eftir fjórar umferðir í áskorendaflokki Skákþings Íslands. Fyrrum Reykjavíkurmeistarinn Stefán Steingrímur Bergsson kemur fast á hæla hans eftir góðan sigur á alþjóðlega meistaranum Einari Hjalta Jenssyni í mikilli baráttuskák.

Símon tefldi af gríðarlegum krafti gegn Caro-Kann vörn Guðna Stefáns. Símon fékk yfirburðatafl en Guðni virtist með seiglu vera kominn inn í skákina þegar Símon hóf seinni bylgjuna í sókninni og sú bylgja dugði til!

Mikil barátta var á öðru borði þar sem Stefán Steingrímur freistaðist þess að snúa á stigahæsta keppanda mótsins með hvítu mönnunum. Eftir mikla stöðubaráttu virtist Einar ætla að hrifsa stöðuna til sín með „kolkrabba-riddara“ á d4 en Stefán reyndist ólseigur í tímahraki og flækjum og náði að snúa skákinni sér í vil.

Hörkuskák hjá Stefáni og Einari

Benedikt Briem náði seiglu jafntefli með svörtu gegn Hrannari Baldurssyni eftir að hafa tapað manni. Birkir Ísak vann góðan sigur með hvítu gegn Lenku Ptacnikovu.

Ungu skákmennirnir stóðu sína vakt í þessari umferð. Sigurður Páll Guðnýjarson náði ekki að fylgja eftir góðum sigri á Jóhönnu en lét Gauta Pál Jónsson virkilega hafa fyrir sigrinum í skák þeirra. Hinn ungi Ingvar Wu Skarphéðinsson vann sterkan sigur á Eiríki Björnssyni og Benedikt Þórisson lagði nafna sinn Baldursson að velli.

Loks lagði Adam Omarsson yngri bróður sinn Josef Omarsson að velli en það hlýtur að vera einsdæmi að mæta móður sinni og yngri bróður í fyrstu fjórum umferðum á skákmóti!

Símon leiðir með fullt hús, Stefán hefur þrjá og hálfan vinning og svo kemur stór hópur með þrjá vinninga af fjórum. Spennan heldur áfram á morgun og hefst taflmennska klukkan 18:00.

- Auglýsing -