Mótin í Uppsölum héldu áfram í dag. Tefld var umferð í opna flokknum og tvöföld umferð, ein af tveimur slíkum, var tefld í dag.
Opinn flokkur:
Förum yfir árangur Íslendingana og hefjum leik í opna flokknum. Skemmst er frá því að segja að Íslendingarnir unnu nánast allir nema Jón Úlfur og Hrund. Andstæðingur Hrundar, neitaði að gefast upp…sem kemur kannski lítið á óvart ef rýnt er í nafn hans!
Jón Úlfur Hafþórsson er stigalaus og tapaði sini skák gegn Kjell Persson (1719) í dag. Jón er enn með 0 vinninga.

Hrund Hauksdóttir (1823) stýrðu hvítu mönnunum gegn Anil Surender (2001) en sá síðarnefndi gaf sig ekki og jafntefli varð niðurstaðan. Hrund er með 1,5 vinning.
Kristján Dagur Jónsson bætti fyrir tapið í gær og lagði stigalausan andstæðing sinn, Viktor Ring. Vonandi hringdi síminn ekki hjá Viktori en hann hleypur örugglega sigurhring þegar hann fær sinn fyrsta vinning! Kristján Dagur hefur 1 vinning.
Restin af Íslendingunum unnu sínar skákir og flestar gegn stigahærri andstæðing. Þessir deila allir efsta sætinu með 2 vinninga af 2. Þetta eru:
Lisseth Acevedo Mendez (1825) sem lagði Anders Moborn (2019) með svörtu mönnunum, Tinna Kristín Finnbogadóttir (1821) sem lagði einnig andstæðing sinn með svörtu Jung Hyn Seo (1965), Jóhann Arnar Finnsson (1818) lagði Görgen Andersson (1949) og loks vann Hörður Aron Hauksson (1843) siur á Victor Lilliehöök (1476).

IM-flokkur I
Hilmir Freyr náði sínum fyrsta vinningi í fyrri umferðinni þegar hann gjörsamlega vélaði niður Martin Jogstad (2334) í Catalan-byrjun.
Í seinni skákinni gegn Samir Sahidi lenti Hilmir hinsvegar í vélrænni þjöppun þar sem Samir virtist hafa öll plön á hreinu gegn stöku peði Hilmis Freys.
IM-flokkur II
Í hinum flokknum tefla Dagur og Vignir.

Dagur þjarmaði jafnt og þétt að andstæðingi sínum í 2. umferðinn í morgun, Alexander Hart (2032). Eftir miklar sviptingar þar sem Dagur missti þráðinn hressileg kom upp merkilegt og erfitt endatafl þar sem hvítur á tvo riddara gegn peði andstæðingsins…..má segja að skákin hafi farið í hart!
Dagur reyndist vandanum vaxinn og var með Troitsky línuna á hreinu og náði að þvinga mátið. Um þessa „línu“ má fræðast betur hér:
https://en.wikipedia.org/wiki/Two_knights_endgame
…og eins í þessu myndbandi:
Seinni skák Dags gekk ekki jafn vel og varð hann að lúta í dúk gegn Konstantin Borsuk (2415)

Vignir var einnig upp og niður í sínum skákum, vann aðra og tapaði hinni.
Í 2. umferð tapaði hann einnig fyrir Konstantin Borsuk (2415). Tapaði var klaufalegt þar sem Vignir fékk algjöra yfirburðastöðu og átt líklegast rakinn vinning í 14. leik.
Seinni skákin var vel útfærð og Vignir vann auðveldlega gegn Leo Crevatin (2160)
Einföld umferð verður í báðum flokkunum á morgun.
- Úrslit í opnum flokki
- Úrslit í IM flokki I (Hilmir)
- Úrslit í IM flokki II (Vignir og Dagur)
- IM flokkur II á Chess24
- IM flokkur I á Chess24


















