Kviku Reykjavíkurskákmótið fór af stað í dag en mótið er einnig EM einstaklinga í skák og því einstaklega vel skipað í ár.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra setti mótið en auk hennar fluttu Alexandra Briem frá borginni og Gunnar Björnsson forseti Skáksambandsins og varaforseti ECU stuttar ræður. Katrín lék fyrsta leiknum fyrir Gawain Jones.

Styrkleikamunur var nokkur í þessari fyrstu umferð af ellefu. Lítið var um óvænt úrslit en hinn ungi Hilmir Freyr Heimisson (2309) vann stórglæsilegan sigur á stórmeistara frá Ungverjalandi, Tamas Banusz (2631). Hilmir var að öðrum ólöstuðum stjarna dagsins. Hér er glæsileg sigurskák hans þar sem hann hreinlega tætti stórmeistarann í sig með svörtu!

Flott skák hjá Hilmi og vonandi heldur hann þessum dampi í mótinu!
Næsti keppandi til að leggja stórmeistara var Martin Wecker (2195). Hann lagði Króatann Marin Bosiocic (2610) óvænt að velli. Einnig lá Tiger Hillarp Persson (2543) óvænt gegn Svisslendingnum Nicolas Kueng (2005). Að öðru leiti urðu úrslit eftir bókinni fyrir utan örfá jafntefli.
Íslensku stórmeistarnir sjö unnu allir sínar skákir.








Fjörið heldur áfram á morgun og hefst önnur umferð klukkan 15:00.
Útsending 1. umferðar:

















