Leikar eru hafnir á Kviku Reykjavíkurskákmótinu / Evrópumóti einstaklinga í skák. Margar athyglisverðar viðureignir eru á boðstólnum í fyrstu umferð og margir Íslendingar með krefjandi verkefni í skákum dagsins.

Katrín Jakobsdóttir opnaði mótið formlega og lék fyrsta leikinn fyrir Gawain Jones, 1.e4!

Vignir Vatnar Stefánsson og Davíð Kjartansson tefla á níunda og tólfta borði gegn stigaháum andstæðingum.

Ýmsar leiðir eru til að fylgjast með. Lýsingar með Ivan Sokolov og gestum er t.d. á YouTube rásinni ReykjavikOpenChess

Sama streymi má nálgast á Twitch rásinni Reykjavik Open:

https://www.twitch.tv/reykjavikopen

Þeir sem vilja skoða skákir hafa svo ýmsa möguleika.

Chess24

Chess.com/events

Chessbomb

Lichess broadcast

Fyrir farsímanotendur mælum við með því að hlaða niður appinu FollowChess þar sem hægt er að fylgjast með flestum skákviðburðum heims í beinni.

Öll úrslit má svo nálgast á Chess-results

Mótið á Chess-results

Heimasíða mótsins

 

- Auglýsing -